Auglýsing

Einhverjar aðrar síður sem eru ekki eins góðar;) haha

Könnun

Hver hefur fengið inngróið skaphár á hökuna?

ÁTAK...!!

Ég vil minna á söfnunarátak okkar fíbblana fyrir konur sem selja sig, þetta eru fólk eins og við þær þurfa þvenga rétt eins og við hin.....
Ég hef skoðanir á svona hlutum...

...Snjókorn falla á allt og alla...

22. desember 2007 klukkan 20:07

Ég vil óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári, og hafið það sem allra best á nýju ári..!!
Jólakveðjur Oddný Bergþóra Helgadóttir Saklaus


Hann snýr BAKI í gluggann...!

21. nóvember 2007 klukkan 00:32
Þá er hinni æsiskemmtilegu bústaðarferð lokið henni lauk seint á sunnudeginum, og heim þurfti að halda, ekki til mikillar vinsældar.
Eins og vanalega þá var helgin æðisleg, róandi og örvandi Glottandi (hvað eruð þið að hugsa um perrarnir ykkar) Svo finnst mér alveg æðislegt hvað við breytumst í alveg gúrmey kokka...!! engar ýkjur hér á ferð, sumir hafa bara einfaldlega ekki smakkað lærin "okkar"  sem eru algjört hnostgæti..! svona létt grillað.

Ég tók eftir að Selma og Kristín eru avar miklar keppniskonur og urðu nokkur egó brostin þegar ein vann aðra í singstar, en elskurnar mínar þið eruð stjörnurnar mínar og þið þurfið ekki að keppast um það Brosandi
Myrkfælnin lét sig ekki vanta og átti stórt hlutverk í góðri helgi, ekki má gleyma að það var rok og verulega dimmt og að við erum sumar með ógurlega lítil hjörtu, þessum atriðum má ekki gleyma, en eitt atvik átti þá vinningin. Og er það frábæra drauga myndin okkar ..!!!! sem hreint út sagt er æðisleg, ár síðan að þessi mynd var tekin í þessum sama bústað og við vorum að taka efir þessu núna...!
og ætla ég að deila þessari mynd með ykkur. Horfa vel og vandalega og ekki hugsa bara um kám á linsu því þetta er ekki kám á linsu því okkar myndavélar eru bara hreinar...!!! Svalur



Þið sjáið veruna í bakgrunninum á veröndinni, og það sést greinilega að hún er úti, og líka það að við reyndum að taka myndir og framkalla skugga en ekkert kom eins og þetta...!
jááá og líka hann snýr baki í okkur og er að horfa á Vatnaskóg... :D

Verður ekki lengra í bili
Kv Oddný Bergþóra

"þú ert eins og slefandi ungabarn"

05. nóvember 2007 klukkan 20:28

Við skulum vera þakklát fyrir að sem við höfum

Þrjár vændiskonur amman, mamman og dóttirin voru að ræða saman, dóttirin segjir vonsvikin " ég fékk bara 5000 kr fyrir tott"...þá grípur mamman inní umræðuna og segjir við dóttur sína "vertu nú ángæð þegar ég var á þínum aldri þá fékk ég bara 2500 fyrir tott".... þá heyrist í ömmunni " blessaðar veriði, verið þakklátar, þegar ég var í ykkar aldri þá var maður bara þakklátur fyrir að fá eitthvað heitt í magann"....



jaaaá öll höfum við það mis gott....!!


Tumi litli fór inn í herbergi til pabba síns og sá hann sitjandi á rúminu setjandi á sig smokk.
Pabbi Tuma reyndi að fela stífan, smokki klæddan liminn með því að beigja sig fram eins og hann væri að líta undir rúm.
Tumi litli spurði forvitinn, "hvað ertu að gera pabbi?"
Faðir hans svaraði snögglega, "mér fannst ég sjá rottu skjótast undir rúmið."
Þannig að Tumi spurði, "og hvað ætlar þú að gera, ríða henni?"

Bestustu kveðjur Odda :D



Kondu í sleik....

06. október 2007 klukkan 21:19

Komið allar sælar og blessaðar eldhúsmellur.... Svalur

svooo komið þið hingað oft....hmmm nei enda er ekkert hérna fyrir ykkur að skoða nema alltaf það sama
bloggið elskurnar mínar. En ég fékk hugdettu að skrifa eitthvað hérna, þar sem ég sit hérna heima á laugardagskvöldi og bíð eftir henni yndislegu frænku minni Eydísi Saklaus
Það hefur nú margt á mína daga drifið góðir dagar og enn betri dagar, þetta var án efa skemmtilegasta sumar sem ég hef upplifað, get sagt það mikilli vissu en sadly þá er þetta sumar liðið en vitið þið hvað þá tekur bara æðislegt haust við, eruð þið ekki sammála mér, styttist óðfluga i jólin..(hahaha óðfluga...óð Fluga, get it) mig er farið að langa til að hlusta á jólalögin, skella þeim á ipodin og hlusta á þau á meðan ég sé landanum fyrir nammi og bruna eins og berfættur bavíani á lyftara um ganga Nóa Síríusar. Þar mér til mikillar ánægju þá eru geitungarnir farnir frá gámnum í vinnunni svo ég get farið EIN með ruslið núna Svalur já ég veit ég er töff...þurfið ekki að segja mér það tvisvar....

Ég er búin að panta tíma í tattoo gerði það með samstafskonu minni henni Kristínu Ósk, og förum við saman 10. nóvember kl 16:00 ... og núna ligg ég yfir hebresku stafrófi til að reyna stafa nafn föður míns rétt á hebresku, en amma mín elskuleg ætlar að hjálpa mér....  :D
mikill spenna liggur yfir því...

En ég er mikill sálfræðingur í mér og hef fundið lausn fyrir fólk með lausar skrúfur...þeim vantar innri RÓ hahahahahha

Kveðja Oddný Bergþóra

Stundum skammast ég mín að vera Íslendingur

14. september 2007 klukkan 01:12
  

Vitið þið að ég get verið alvarleg manneskja, ég er viss um að núna þegar þú klárar að lesa þessa setningu þá kippir í brosið. En þetta er satt og ég hef tekið eftir þessu að undan förnu misseri. Ég er eflaust mjög leiðinleg þegar ég er of drukkinn því ég tala of mikið, ég er hundleiðinleg þegar ég er pirruð, mamma tekur alltaf eftir því, en ég meina hef ég ekki sama rétt á því að vera pirruð..? Þótt ég sé ung og allt það hefur ungt fólk ekki rétt á því að vera pirrað og fúlt, allir eiga mismunandi daga, en þegar unglingar eða ungt fólk er pirrað þá er það bara stimplað sem FÝLA, mér finnst það óréttlátt...!! hvað finnst ykkur?

Og líka hvenær fæ og aðrir jafnaldrar mínir þá virðingu sem okkur ber að fá? Ég bara spyr, hversu gömul þarf ég að vera til að fá góða afgreiðslu og virðingu sem allir eiga að fá..? eins og ég hef oft sagt hversu lengi þarf ég að biðja mömmu mína að hjálpa mér, eins og með blessuðu eyjamiðana okkar, við fengum skítkast í andlitið þegar þeir hjá samskip eða eimskip gátu ekki viðukennt villu sína við mig og Kristínu, eeeen svo þegar ég bið mömmu að hringja þá biðjast þeir afsökunar og fáum miða og allt það. Og þetta kalla ég fáránlega þjónustu, og líka ef og og Kristín hefðu verið með meiri kjark og sagt meira og verið já eins og mamma var í símanum þá hefðum við verið stimplaðar með Attitjút....eins og sagði áðan hvað þarf ég að vera gömul til að hætta að þurfa að biða móður mína um þetta...?? Finnst ykkur þetta ekki til skammar...

Og meira til skammar...!! Hvað er að samfélaginu hérna á Íslandi, þessu landi sem á að vera svo gott og æðislegt, núna spyr ég, hver horfði á Kastljósið 12 sept? Þá var verið að fjalla um einstæðar mæður á götunni með börnin sín og ræða við nokkrar af þeim......hvert er þetta allt að stefna það er ekkert gert fyrir fólk hérna, einstæðar mæður sem flýja kærasta/eiginmenn sem berja þær og misnota og þær lenda á götunni vegna þess að þær fá EKKERT, enga hjálp, það lifir engin einstæð móðir með lúsalaun eins og er hérna á þessu helvítis landi og þarf að borga 80 þús til 100 í leigu á mánuði og svo þurfa að lifa á restinni. 19 ára einstæð móðir bjó á götunni með barnið sitt, fékk að gista hér og þar og svaf í bíl vinar síns með barnið sitt...Þetta er langt frá því að vera viðunandi...!!! það er skömm af þessu. 700 manns eru á biðlista hjá féló, vegna skorst á húsnæði...HELVÍTIS KJAFTÆÐI, það er NÓG af húsnæði í á höfuðborgasvæðinu, ef allt væri notað hérna sem er laust þá væri þessi 700 manna listi ekki til staðar, og ég segji þetta með fullri vissu, það var verið að tala um fullt af auðum blokkum í vinnuni, eitthvað sem bankar eiga og þetta stendur autt, og það er sífellt verið að byggja, og líka með það, að útá landi er nóg að búa, það hljóta einhverjir á 700 mannalistanum vilja vera útá landi og fá vinnu þar, ef ég á að segja fyrir mig, að ef ég væri einstæð móðir og götunni og fengi loksins húsnæði sama hvar það væri útá landi ég myndi stökkva og taka það og ég vona og held að margar mæður myndu gera það, sama við hvað ég þyrfti að vinna, bara ef ég hefði nóg til að veita mínu barni gott heimili með hamingju og ást.

En í dag er ekki nóg að hafa ást, það þarf yfirdráttaheimild og lán til að lifa.

 

Kv. Oddný Bergþóra

ÍHUGANAR EFNI ELSKURNAR....VERÐUM AÐ BÆTA OKKUR

06. september 2007 klukkan 12:35
Jeminn eini þetta er alveg ekki að ganga við hljótum að vera hinir verstu bloggarar ever...!!!
Allavega þá langar mér að þetta breytist, og ætla ég að fara taka mig til og fara skrifa eitthvað fræðilegt og skemmtilegt og svona bara um daginn og veginn, held að það verði skemmtilegt, haldið þið það ekki? já og finna skemmtilegar myndir og skemmta landanum allavega þeim sem lesa :D þurfum að ná í fólkið okkar sem var að lesa :p Kristin er alltaf dugleg að lesa hjá okkur...lets not put her down

KOMA SVO STELPUR :D

Kv Oddný Bergþóra

Camel toe???

07. ágúst 2007 klukkan 00:34
jæja stelpur! Hér er ein spurning....

hafiði heyrt um camel toe???

hér eitt sem gefur ykkur hugmynd um það.... nema þetta er á vitlausu kyninu;)


Okey hitt misheppnaðist....SPICE GIRLS HERE WE COME...og svo bara segjið þið london og allt það....

05. júlí 2007 klukkan 23:48





SWEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEEET

Good Quality Good quality

04. júlí 2007 klukkan 23:41
Hellú þá er ég eiginlega löngu komin frá Tyrklandi en ekki svo....Og get ég sagt með mikilli vissu að ég skemmti mér geggjað vel. Alveg æðislegt að fá tækifæri til að fara til svona já ég get sagt framandi lands eins og Tyrkland er, og í Tyrklandi er eina höfuðborgin í öllum heiminum sem er staðsett í tveimur heimsálfum og það er höfuðborg þeirra Istanbúl hún er stödd í Evrópu og Asíu, við vorum í Marmaris og það er staðsett í asíumeginn, og í henni búa 17 milljónir manna, og allir þeir sem við söguð hve margir búa á íslandi til samans þá áttu þeir erfitt með að trúa því, gaman að sjá viðbrögðin hjá þeim. Konan þarna er eiginlega ekkert annað en hvert annað húsdýr, sumar eru heppnar aðrar ekki svo og maður fann til með mörgum, en lítið er hægt að gera. Búðirnar eru MARGAR og allar eins í einstökum búðum má finna eitthvað frábrugðið örðum búðum. Sölumennirnir voru hreint út sagt svakalegir..!! Margir hverjir dónalegir og ruddalegir og allir kölluðu þeir "yes yes come look my store yes" eða "i have good guality, good guality" ....Stundum var frekar pirrandi að ganga um göturnar þarna þvi maður fékk ekki frið frá þeim.
Karlmennirnir eru með vissu ALLT ÖÐRUVÍSI og ekki neitt spes..!! ég og Begga vorum að vona að sjá einhvert augnkonfekt smá svona klæða hann úr með augunum og biðja hann svona aðeins að dilla sér...eeeeeeeeeen nei þeir voru litlir,loðnir og frekar hallærislegir og eyða heilli geldollu í hárið á sér og það er ekki neinar ýkjur...!! þeir voru verri en Jhon Travolta í Grease svakalegt...!!! en svo sáum við fallegann mann og viti menn ég náði honum uppá video....en með öllu góðu þá reyndar fylgir eitthvað illt hann átti kærustu. To bad....

Fórum í margar ferðir til að fá nýta ferðina til að skoða sem mest af Tyrklandi, Jeppasafaríið var æðislegt, vatnsstríð og læti :D geggjað fjör, maður kom vel blautur heim og skítugur. Kíktum svo til Ephesus og þar eru fornmynjar frá tíma Jesú, svakalega stórt hringleikahús, miklar byggingar og alveg ótrúlegt að sjá hvað þær hafa varðveist mikið, reyndar búið að laga sumt en það er ekki mikið sést ekki mikið. Og á sumum stöðum þar gat maður sér svona merkingar sem þýða að jesús hafi verið þarna, mikið spes að sjá þetta. Fórum á stað þar sem María mey átti að hafa búið og dáið. Sáum fjallið sem Jóhannes skírari var fangelsaður.... Magnað...
Fór á Jetsky í fyrsta skipti og ég mæli sko vel með því við alla, maður fær sko mikið kick út úr því...

En meira seinna, ef þið viljir heyra meira þá bara taka upp tólið og hringja í mig ég skal með glöðu geði segja ykkur fullt og meira með Svalur




Sumar kveðjur Oddný B.

Well, well....

09. júní 2007 klukkan 17:24
Jæja nú eru Oddný og Selma farnar til útlanda og við Sara einar eftir á landinu.. Takk stelpur að skilja okkur svona eftir, nú veit mar hverjir eru sannir vinir manns... hehe djók!! vonandi skemmtið þið ykkur úti elskurnar ;* hafið það gott!!!!
En já ég ætlaði nú bara að koma með blogg af því að Oddný er alltaf vælandi um e-ð blogg en ég verð nú að fara að drita e-u á þessa síðu... Lítið að frétta, bara boltinn og vinna á fullu... Boltinn mætti alveg ganga betur, eigum e-ð voða erfitt að komast í gang þessa dagana en það kemur vonandi síðar!! eða bara svona sem fyrst!!! :)

Ég ætla nú rétt að vona að Sara sé enn á lífi? Ertu þarna Sara mín?? þú kannski lætur í þér heyra þegar þú sérð þetta :)
annas er ég hætt að bulla... þangað til næst
síjú :)

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Innskráningar kubbur